
Útfösun 3G hefur dregið verulega úr fjarskiptasambandi
Sveitarstjórn Borgarbyggðar fjallaði á síðasta fundi sínum um áhrif lokana á 3G og 2G farsímakerfum sem var í vor. Eftir að lokað var fyrir þjónustuna hafa íbúar og aðrir vegfarendur um sveitarfélagið fundið fyrir verulegri skerðingu á fjarskiptasambandi, eins og fjallað hefur verið um í Skessuhorni.