Árgangamót hjá leikskólabörnum á Akranesi – myndasyrpa

Veðrið leikur við börn og starfsfólk leikskólanna á Akranesi í dag, en með löngum fyrirvara er skipulagður útidagur að vori. Á Aggapalli kom árgangur 2022 af öllum leikskólunum bæjarins saman en í Garðalundi börn sem fædd eru 2021. Blaðamaður Skessuhorns leit við í Garðalundi í logni og glampandi sól í morgun. Börnin undu sér vel við allskyns leiki; fótbolta, klifur, rólur, sandkastalabyggingar, tjaldað var í skóginum, blásnar sápukúlur og teiknað. Dagskráin endar svo með að grillaðar verða pylsur. Við leyfum meðfylgjandi myndum af árgangi 2021 að tala sínu máli.