
Brattagata liggur milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu í Borgarnesi. Ljósm. mm
Endurnýjun Bröttugötu hefst í júní
Borgarbyggð, Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu í Borgarnesi. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum. Vegna kostnaðar var horfið frá því að hafa snjóbræðslu í götunni.