
Gísli Eyjólfs skoraði annað mark heimamanna. Ljósm. Jón Gautur foto
Kaflaskiptur leikur Skagamanna
ÍBV sótti ÍA heim í gærkvöldi í byrjunarleik áttundu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta. Tölfræðin var með Skagamönnum fyrir leikinn því ÍBV sat á botninum en ÍA var um miðbik deild með átta stig. Leikurinn fór vel af stað fyrir heimamenn sem náðu að komast tveimur mörkum yfir áður en gestirnir svöruðu fyrir sig. Þar voru á ferðinni nafnarnir Gísli Laxdal Unnarsson á 47. mínútu og Gísli Eyjólfsson á 51. mínútu. Staðan var því býsna vænleg, en átti eftir að breytast. Á 68. mínútu skorar Eyjamaðurinn Halldór Jón Sigurður Þórðarson og á 78. mínútu bætir Róbert Elís Hlynsson öðru marki við fyrir gestina. Það varð niðurstaðan; 2-2 jafntefli.