Ragnheiður á Kúludalsá var fyrsti frummælandinn. Hér sýnir hún kort með vöktunarstöðum loftgæða. Ljósm. mm

Bauð til fundar um loftgæði við Hvalfjörð

Í vikunni fyrir kosningar var haldinn kynningarfundur um loftgæði og lýðheilsu við Hvalfjörð, í anddyri Tónlistarskólans á Akranesi. Ragnheiður Þorgrímsdóttir á Kúludalsá skipulagði og boðaði til fundarins en Stefán Pálsson var fundarstjóri. Flutt voru þrjú framsöguerindi en auk þess var fulltrúum framboða á Akranesi og Hvalfjarðarsveit boðið að segja nokkur orð.