Listi Framsóknar og félagshyggjufólks ásamt Birki Jóni Jónssyni verðandi bæjarstjóra, sem er fjórði frá vinstri.

Breytingar í forystu Grundarfjarðar og Birkir Jón verður bæjarstjóri

B listi Framsóknar og félagshyggjufólks í Grundarfirði þakkar kjósendum fyrir þátttökuna og traustið í sveitarstjórnarkosningunum fyrr í mánuðinum. „Við þökkum fráfarandi bæjarstjórn og bæjarstjóra, Björgu Ágústsdóttur, fyrir þeirra framlag til Grundarfjarðarbæjar,“ segir í tilkynningu.

„Framundan eru spennandi tímar í Grundarfirði þar sem við munum leggja áherslu á áframhaldandi uppbyggingu, húsnæðismál, opið samtal við íbúa, bætta þjónustu og atvinnuuppbyggingu til hagsbóta fyrir fjölskyldur og atvinnulíf.

Samkomulag hefur náðst um að Birkir Jón Jónsson verði næsti bæjarstjóri Grundarfjarðar. Hann býr yfir fjölbreyttri reynslu úr stjórnsýslu og stjórnmálum. Ráðning hans verður formlega staðfest þegar ný bæjarstjórn hefur tekið til starfa.“