Sjúkraflutningafólk að störfum í Borgarnesi. Ljósm. Stjórnarráðið

Aðgerðaáætlun til 2030 um sjúkraflutninga

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur samþykkt aðgerðaáætlun fyrir sjúkraflutninga og bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana til ársins 2030. Áætlunin miðar að því að efla gæði og öryggi bráðaþjónustu um allt land. Aðgerðaáætlunina vann vinnuhópur, skipaður breiðum hópi hagaðila og fagfólki, sem tengist málefnum sjúkraflutninga um allt land. Í starfi sínu studdist hópurinn við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030.