Fréttir

true

Jákvæður rekstur Sveitarfélagsins Stykkishólms

Rekstur Sveitarfélagsins Stykkishólms skilar umtalsverðum hagnaði samkvæmt ársreikningi 2025, sem tekinn var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 30. apríl síðastliðinn. Rekstur sveitarfélagsins styrktist talsvert milli ára. Samkvæmt ársreikningnum var rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 353 milljónir króna og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 246 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B…Lesa meira

true

Bjóða út kaup á slökkvibifreið

Fyrirtækið Consensa hefur, fyrir hönd Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, óskað eftir tilboðum í kaup á nýrri slökkvibifreið. Stefnt er að kaupum á slökkvibifreið með krókheysisbúnaði og dælu fyrir slökkviliðið, sem skal afhent eigi síðar en fjórum mánuðum frá samþykki tilboðs.Lesa meira

true

Nafn konunnar sem lést á Skorradalsvatni

Konan sem lést í kajakslysi á Skorradalsvatni síðastliðinn miðvikudag hét Inga Dögg Kristinsdóttir. Hún var 44 ára og búsett á Hvanneyri ásamt fjölskyldu sinni. Inga Dögg lætur eftir sig eiginmann og tvo unga syni, tveggja og fjögurra ára. Eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson greinir frá þessu á FB síðu sinni í morgun. „Í þeim ólýsanlega harmi…Lesa meira

true

Eldur kraumaði í sumarhúsi

Á níunda tímanum í kvöld var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út á hæsta forgangi vegna reyks sem lagði frá gömlu sumarhúsi við Hraunvé 22, ofan við Bifröst í Norðurárdal. Fyrstir á vettvang voru slökkviliðsmenn sem hafa bíla og búnað á Bifröst en fljótlega barst þeim liðsauki úr Borgarnesi. Svo virðist sem eldur hafi kraumað undir húsinu…Lesa meira

true

Minntist fyrsta skólastjórans á Hvanneyri

Landbúnaðarsafn Íslands stóð í vetur fyrir nokkrum viðburðum þar sem flutt voru fróðleg erindi af ýmsu tagi. Síðasti slíki viðburðurinn fór fram í liðinni viku í Skemmunni á Hvanneyri. Dr. Bjarni Guðmundsson sagði þá frá fyrsta skólastjóranum á Hvanneyri; Sveini Sveinssyni búfræðingi (1849-1892). Sveinn nam búfræði og búvísindi bæði í Noregi og Danmörku og var…Lesa meira

true

Styrkur okkar er velferð allra – var kjörorð 1. maí

Hvarvetna um landið var haldið upp á baráttudag verkafólks 1. maí í gær með útifundum, kröfugöngum og kaffisamsætum. „Styrkur okkar er velferð allra,“ var kjörorð dagsins að þessu sinni. Forystufólki í verkalýðshreyfingunni varð tíðrætt um áhrif þess að verðhækkanir og verðbólga ógna nú forsendum þeirra kjarasamninga sem eru í gildi. Háir stýrivextir og miklar verðhækkanir…Lesa meira

true

Dalafólk fyrstu þátttakendur í Búsæld á Breið

Á miðvikudaginn í síðustu viku var haldinn markaður í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi og markaði hann upphaf verkefnis sem nefnist Búsæld á Breið. Það voru fulltrúar framleiðenda úr Dalabyggð sem fyrstir mættu til leiks. Meðal seljenda voru Ásgarður og Erpsstaðir, Dalarætur, Gamla læknishúsið, Dalahvítlaukur og Urður ullarvinnsla. Kynntu þeir og seldu fjölbreyttar afurðir; matvæli, lopa,…Lesa meira

true

Fallið frá afnámi línuívilnunar og skelbóta

Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis kynnti á fimmtudaginn breytingu á áður boðuðu frumvarpi um stjórn fiskveiða. „Lagt er til að felld verði brott ákvæði laganna um línuívilnun, rækju- og skelbætur og að mælt verði fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna strandveiða,“ segir í bókun meirihluta nefndarinnar. Þessar tillögur um afnám skelbóta og línuívilnunar hefur mætt harðri andstöðu í…Lesa meira

true

Framsókn nær inn manni frá síðustu könnun

Í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið, er fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi brotið niður á kjördæmi. Þau tíðindi verða nú, frá síðustu könnun, að Framsóknarflokkur eykur fylgi sitt og næði inn kjördæmakjörnum manni í NV kjördæmi, en flokkurinn mælist með 12,3% fylgi. Miðflokkurinn er stærstur í kjördæminu, með 24,2% og fengi tvo kjördæmakjörna.…Lesa meira

true

Sindratorfæran fer fram í dag

Hinn árlega og stórbrotna Sindratorfæra fer fram í í dag kl. 10-16 við Hellu. 31 keppandi er skráður til leiks í tveimur flokkum. Nokkrir sem eru að keppa í sinni fyrstu keppni, aðrir sem hafa verið með í ára raðir og enn aðrir sem eru að koma til baka eftir mislangt hlé. Á meðal keppenda…Lesa meira