Sindratorfæran fer fram í dag

Hinn árlega og stórbrotna Sindratorfæra fer fram í í dag kl. 10-16 við Hellu. 31 keppandi er skráður til leiks í tveimur flokkum. Nokkrir sem eru að keppa í sinni fyrstu keppni, aðrir sem hafa verið með í ára raðir og enn aðrir sem eru að koma til baka eftir mislangt hlé. Á meðal keppenda eru Íslandmeistararnir Bjarnþór Elíasson og Finnur Bárðarson. Að öðrum ólöstruðum er Telma Lind Árnadóttir skráð til leiks en níu ár eru síðan kona keppti síðast í torfæru. Hún er 17 ára og mætir á nýsmíðaðri Túttu og ætlar ekki að gefa strákunum neitt eftir.

Aðeins fimm sinnum í sögu Hellutorfærunnar hafa keppendur verið 30 eða fleiri og má segja að það séu rúmlega helmingur þeirra sigurstranglegur og allflestir staðið á verðlaunapalli. Spennan er mikil eins og sést hefur undanfarna daga hjá keppendum.

Það eru Flugbjörgunarsveitin á Hellu og Akstursíþróttanefnd Heklu sem standa að keppninni sem hefur verið haldin nær óslitið síðan 1973.  Keppnissvæðið er í Tröllkonugili rétt austan Hellu en þar eru kjöraðstaða fyrir áhorfendur að setjast í brekkurnar og fylgjast með þessum 1000 hestafla græjum reyna fyrir sér í sandbrekkum, börðum og fleytingum á ánni.

Torfæra er skemmtun fyrir alla fjölskylduna en síðustu ár hafa 5-6 þúsund manns verið á svæðinu og allir haft gaman að því að skoða græjurnar og sjá þær svo takast á við brautirnar. Bein útsending verður frá keppninni á Youtube og Rúv-2 fyrir þá sem ekki komast á staðinn. Auðvelt að finna á youtube með því að leita eftir Sindratorfæran live.