Jákvæður rekstur Sveitarfélagsins Stykkishólms

Rekstur Sveitarfélagsins Stykkishólms skilar umtalsverðum hagnaði samkvæmt ársreikningi 2025, sem tekinn var til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi 30. apríl síðastliðinn. Rekstur sveitarfélagsins styrktist talsvert milli ára. Samkvæmt ársreikningnum var rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði jákvæð um 353 milljónir króna og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 246 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 96 milljónir en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu upp á 100 milljónir. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um þrjár milljónir króna.