
Dalafólk fyrstu þátttakendur í Búsæld á Breið
Á miðvikudaginn í síðustu viku var haldinn markaður í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi og markaði hann upphaf verkefnis sem nefnist Búsæld á Breið. Það voru fulltrúar framleiðenda úr Dalabyggð sem fyrstir mættu til leiks. Meðal seljenda voru Ásgarður og Erpsstaðir, Dalarætur, Gamla læknishúsið, Dalahvítlaukur og Urður ullarvinnsla. Kynntu þeir og seldu fjölbreyttar afurðir; matvæli, lopa, sápur og fleira. Auk markaðar voru fluttir örfyrirlestrar. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir fráfarandi þingmaður og ráðherra er verndari Breiðarinnar, en hún var ráðherra þegar nýsköpunarsetrið fór af stað. Þá var kynning á Dalahvítlauk og Bjarki Þorsteinsson sveitarstjóri sagði nokkur orð. Sagði hann ánægjulegt að öflugt fólk í Dölum sýndi frumkvöðlastarf sitt og framleiðslu með þessum hætti.