Landað úr Þórsnesi SH, en útgerð skipsins hefur á liðnum árum fengið hvað hæstar skelbætur. Ljósm. úr safni/tfk

Fallið frá afnámi línuívilnunar og skelbóta

Meirihluti atvinnuveganefndar Alþingis kynnti á fimmtudaginn breytingu á áður boðuðu frumvarpi um stjórn fiskveiða. „Lagt er til að felld verði brott ákvæði laganna um línuívilnun, rækju- og skelbætur og að mælt verði fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna strandveiða,“ segir í bókun meirihluta nefndarinnar. Þessar tillögur um afnám skelbóta og línuívilnunar hefur mætt harðri andstöðu í sjávarbyggðum, ekki hvað síst úr Stykkishólmi þar sem línuívilnun hefur verið hlutfallslega hæst á landinu og mikilvægust byggðinni þar.