
Framsókn nær inn manni frá síðustu könnun
Í nýrri skoðanakönnun Gallup, sem gerð var fyrir Ríkisútvarpið, er fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi brotið niður á kjördæmi. Þau tíðindi verða nú, frá síðustu könnun, að Framsóknarflokkur eykur fylgi sitt og næði inn kjördæmakjörnum manni í NV kjördæmi, en flokkurinn mælist með 12,3% fylgi. Miðflokkurinn er stærstur í kjördæminu, með 24,2% og fengi tvo kjördæmakjörna. Samfylking mælist með 21,5% fylgi og fengi sömuleiðis tvo. Sjálfstæðisflokkur dalar í fylgi frá síðustu könnun, mælist nú með 17,4% og fengi einn mann. Aðrir flokkar næðu ekki inn þingmanni. VG er að auka fylgið, mælist nú með 7,6% fylgi, Flokkur fólksins með 6,7%, Viðreisn 5,3%, Sósíalistaflokkurinn með 3,1% og Píratar 0,6%. Miðað við kosningarnar í lok nóvember 2024 eru Viðreisn og Flokkur fólksins að tapa sínum kjördæmakjörnu þingmönnum, en Miðflokkur og Samfylking að taka þá til sín.