Að loknu erindi Bjarna fóru fyrrum skólastjórar út í Frúargarðinn þar sem meðfylgjandi mynd var tekin. F.v. Magnús B. Jónsson, Sveinn Hallgrímsson og Bjarni Guðmundsson. Milli þeirra er lágmynd af Sveini Sveinssyni. Ljósm. áhb

Minntist fyrsta skólastjórans á Hvanneyri

Landbúnaðarsafn Íslands stóð í vetur fyrir nokkrum viðburðum þar sem flutt voru fróðleg erindi af ýmsu tagi. Síðasti slíki viðburðurinn fór fram í liðinni viku í Skemmunni á Hvanneyri. Dr. Bjarni Guðmundsson sagði þá frá fyrsta skólastjóranum á Hvanneyri; Sveini Sveinssyni búfræðingi (1849-1892). Sveinn nam búfræði og búvísindi bæði í Noregi og Danmörku og var ötull við að fræða landann með greinarskrifum og útgáfu á leiðbeiningaritum. Einnig miðlaði hann fræðunum með verklegri þjálfun í einskonar farskóla áður en hann hóf að móta búfræðinámið og varð fyrsti skólastjóri Búnaðarskólans á Hvanneyri. Sveinn var stórbrotinn frumkvöðull með mikla framsýni og metnað fyrir hagræðingu í bústörfum og íslenskum landbúnaði. Landbúnaðarháskóli Íslands hefur í ritröð sinni gefið út sögu Sveins skráða af Bjarna Guðmundssyni.