Nafn konunnar sem lést á Skorradalsvatni

Konan sem lést í kajakslysi á Skorradalsvatni síðastliðinn miðvikudag hét Inga Dögg Kristinsdóttir. Hún var 44 ára og búsett á Hvanneyri ásamt fjölskyldu sinni. Inga Dögg lætur eftir sig eiginmann og tvo unga syni, tveggja og fjögurra ára. Eiginmaður hennar, Vésteinn Valgarðsson greinir frá þessu á FB síðu sinni í morgun.

„Í þeim ólýsanlega harmi sem núna liggur á okkur, kremur okkur og nístir - ég hef aldrei reynt neitt þessu líkt - þá er mikill styrkur í að finna stuðning fjölskyldu, vina og samfélags, það er eina ljósið í myrkrinu núna. Og drengirnir okkar litlu... þeir skilja ekki einu sinni hvað þeir hafa misst, en þeir hafa auðvitað misst mest. En þeir eru mín ábyrgð núna, og skyldan er eitt af því sem gefur okkur kraft og kjark,“ skrifar Vésteinn.