Frá kröfugöngu 1. maí á Akranesi. Ljósm. ki

Styrkur okkar er velferð allra – var kjörorð 1. maí

Hvarvetna um landið var haldið upp á baráttudag verkafólks 1. maí í gær með útifundum, kröfugöngum og kaffisamsætum. „Styrkur okkar er velferð allra,“ var kjörorð dagsins að þessu sinni. Forystufólki í verkalýðshreyfingunni varð tíðrætt um áhrif þess að verðhækkanir og verðbólga ógna nú forsendum þeirra kjarasamninga sem eru í gildi. Háir stýrivextir og miklar verðhækkanir á vöru og þjónustu umfram verðbólgu kallar á leiðréttingu. Kröfðust þeir hækkana á launum svo þau megi halda í við verðlag.