Frá vettvangi á tíunda tímanum í kvöld. Ljósm. mm

Eldur kraumaði í sumarhúsi

Á níunda tímanum í kvöld var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út á hæsta forgangi vegna reyks sem lagði frá gömlu sumarhúsi við Hraunvé 22, ofan við Bifröst í Norðurárdal. Fyrstir á vettvang voru slökkviliðsmenn sem hafa bíla og búnað á Bifröst en fljótlega barst þeim liðsauki úr Borgarnesi. Svo virðist sem eldur hafi kraumað undir húsinu í einhvern tíma, án þess að breiðast út. Slökkvistarf gekk því vel og lauk um klukkutíma eftir að útkallið barst. Húsið er að líkindum ónýtt af völdum hita, sóts og vatns. Eldsupptök eru ókunn en nýverið hafði verið unnið við að losa pall frá húsinu því til stóð að flytja það annað ásamt fleiri húsum á svæðinu. Mildi var að húsið varð ekki eldi að bráð því gróður er afar þurr í Borgarfirði og stutt í kjarr á þessum stað. Lögregla tók í kvöld við vettvangi eftir að slökkviliðsmenn höfðu tryggt aðstæður.