Fréttir

true

Hjólað í vinnuna hefst í maí

Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til…Lesa meira

true

Dalverjans lönd nefnist sýning Eyþórs Inga

Ljósmyndarinn og organistinn Eyþór Ingi Jónsson opnar ljósmyndasýningu sína „Dalverjans lönd“ á Dalahóteli á Laugum í Sælingsdal á laugardaginn kl. 20. Eyþór hefur verið að mynda æskuslóðir sínar og sýnir hann ljósmyndir frá fyrsta ári sínu í verkefninu „Dalverjans lönd.“ Á sýningunni verður skyggnst um af Skeggöxl en um er að ræða fyrsta hluta í…Lesa meira

true

Stærri fjárhæð til úthlutunar öndvegisstyrkja

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fengu nýverið viðbótar fjárveitingu frá fjárlaganefnd Alþingis til Sóknaráætlunar Vesturlands. Stjórn SSV ákvað að nýta fjárveitinguna til þess að veita öndvegisstyrki til áhugaverðra verkefna í landshlutanum. Viðkomandi verkefni geta verið á hugmyndastigi eða lengra komin. Þau þurfa að hafa skírskotun til svæðisins, nýsköpunar í atvinnulífi og menningu þess. „Hugmyndin með…Lesa meira

true

Styrkur okkar er velferð allra – fjölbreytt dagskrá á morgun

Fyrsti maí sem hátíðisdagur rekur uppruna sinn allt aftur til heiðni en þar markaði hann endalok vetrar og upphaf sumars og í Skandinavíu var haldið upp á 1. maí sem sumardaginn fyrsta. Eftir að kristni komst á helgaði kirkjan þennan dag dýrlingnum Valborgu, sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi. Hins vegar varð…Lesa meira

true

Keppnistímabilið að hefjast í Lengjudeild kvenna

Lengjudeild meistaraflokks kvenna fer af stað laugardaginn 2. maí. Grótta tekur á móti Haukum á Vivaldivellinum, heimavelli Gróttu, en HK tekur á móti meistaraflokki ÍA í Kórnum í Kópavogi. Leikurinn hefst kl. 14:00. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Skarphéðni Magnússyni þjálfara meistaraflokks kvenna hjá ÍA og ræddi við hann um leiktíðina sem nú fer í…Lesa meira

true

Fyrsti heimaleikur Víkings verður styrktarleikur fyrir Maríu

Víkingur Ólafsvík spilar sinn fyrsta leik í 2. deildinni á morgun, föstudaginn 1. maí klukkan 14 á Ólafsvíkurvelli. Mótherjarnir verða Hvíti riddarinn. Liðið kemur vel stemmt til leiks en um liðna helgi lék Víkingur til úrslita í Lengjubikar B deildar við Hauka, sem reyndar báru sigur úr býtum. Leikurinn á morgun verður jafnframt stuðningsleikur eins…Lesa meira

true

Baldur tekinn úr siglingum á Breiðafirði til að bjarga Vestmannaeyjum

Breiðafjarðarferjan Baldur fer til Vestmannaeyja og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni. „Samkomulag hefur náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma tekur fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falla…Lesa meira

true

Dalaþema á matarmarkaði á Breið síðdegis í dag

Síðdegis í dag, miðvikudaginn 29. apríl, verður blásið til markaðar í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi milli klukkan 16:00 og 18:00. Þá koma framleiðendur úr Dalabyggð með vörur sínar til að segja frá, gefa smakk og selja. „Dalirnir eru þekkir fyrir fallega náttúru, grösuga dali, stórbrotna sögu og mikilfenglega menningu – en líka stórkostlegan mat,“ segir…Lesa meira

true

Risavaxinn kór af Vesturlandi æfir fyrir tónleika með Sinfó

Í gærkvöldi fór fram fjölmenn kóræfing í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þar var saman komið söngfólk úr einum tíu kórum og sönghópum af Vesturlandi, alls um 130 manns, sem nú æfir fyrir stórtónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem verða föstudaginn 15. maí á Akranesi. Fullskipaður hópur telur 150 manns auk einsöngvara af Vesturlandi. Tilefnið er vígsla nýs…Lesa meira

true

Bágborinn vegur í sunnanverðum Norðurárdal

Það gekk ekki þrautalaust fyrir áhöfnina á meðfylgjandi sorphirðubíl að komast um Norðurárdalsveg í sunnanverðum í Norðurárdal í gær. Vegurinn hefur verið án viðhalds um langa hríð og undirlagið líklega aðallega mold með þunnu malarlagi yfir. Nú þegar vorleysingar ganga yfir er vegurinn ófær fyrir alla þyngri bíla og líklega ber hann ekki nokkra þungaumferð…Lesa meira