
Baldur tekinn úr siglingum á Breiðafirði til að bjarga Vestmannaeyjum
Breiðafjarðarferjan Baldur fer til Vestmannaeyja og mun sigla milli lands og Eyja meðan ástandið í Landeyjahöfn varir. Þetta kemur fram í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni. „Samkomulag hefur náðst um þetta og reiknað með að Baldur hefji siglingar á föstudaginn en nokkurn tíma tekur fyrir skipið að sigla til Vestmannaeyja. Á meðan falla ferðir Baldurs yfir Breiðafjörð niður.“
Baldur mun leggja af stað suður fyrir land á fimmtudagsmorgun. „Verið er að setja saman siglingaáætlun fyrir viðbótarsiglingarnar en gert er ráð fyrir að fyrsta ferð geti orðið á föstudagmorgun. Nánari upplýsingar um siglingaáætlun verður gefin út af Herjólfi ohf. um leið og hún liggur fyrir. Ekki er útlit fyrir vegna veðurs og sjólags að hægt verði að hefja dýpkun [í Landeyjahöfn, innsk. blm.) fyrr en á föstudag. Horfurnar til dýpkunar eru ágætar næstu daga á eftir.“