
Risavaxinn kór af Vesturlandi æfir fyrir tónleika með Sinfó
Í gærkvöldi fór fram fjölmenn kóræfing í Reykholtskirkju í Borgarfirði. Þar var saman komið söngfólk úr einum tíu kórum og sönghópum af Vesturlandi, alls um 130 manns, sem nú æfir fyrir stórtónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem verða föstudaginn 15. maí á Akranesi. Fullskipaður hópur telur 150 manns auk einsöngvara af Vesturlandi. Tilefnið er vígsla nýs íþróttahúss á Jaðarsbökkum. Það var Hólmfríður Friðjónsdóttir sem æfði kórinn í gær, en söngfólkið kemur allt úr landshlutanum. Kórstjórar eru fleiri en Hilmar Örn Agnarsson organisti og kórstjóri á Akranesi er hugmyndasmiður af þessu verkefni og fékk Sinfóníuhljómsveitina til liðs við það fyrir tveimur árum síðan. Meðal annars kemur söngfólk úr Freyjukórnum, Stemmu, Gleðigjöfum, Karlakórnum Heiðbjörtu, Kvennasveitinni Skaða, Hljómi, Karlakórnum Svönum, Kvennakórnum Ym og Kór Akraneskirkju.