
Sumarblíða við Kirkjufellsfoss í Grundarfirði. Ljósm. úr safni
Stærri fjárhæð til úthlutunar öndvegisstyrkja
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) fengu nýverið viðbótar fjárveitingu frá fjárlaganefnd Alþingis til Sóknaráætlunar Vesturlands. Stjórn SSV ákvað að nýta fjárveitinguna til þess að veita öndvegisstyrki til áhugaverðra verkefna í landshlutanum. Viðkomandi verkefni geta verið á hugmyndastigi eða lengra komin. Þau þurfa að hafa skírskotun til svæðisins, nýsköpunar í atvinnulífi og menningu þess. „Hugmyndin með úthlutun Öndvegisstyrkja er að úthluta færri en stærri styrkjum en alla jafnan er úthlutað úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands. Til úthlutunar verða 45 milljónir króna,“ segir í kynningu SSV.