
Tveir hjólhestar. Ljósm. óhk
Hjólað í vinnuna hefst í maí
Frá árinu 2003 hefur Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands staðið myndarlega að því að efla hreyfingu og starfsanda á vinnustöðum með heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Megin markmið verkefnisins er að vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta. Þátttakendur eru hvattir til þess að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur til og frá vinnu. Starfsmenn vinnustaða hér á landi hafa tekið vel við sér því þátttakan hefur margfaldast síðan að verkefnið fór af stað.