Bágborinn vegur í sunnanverðum Norðurárdal

Það gekk ekki þrautalaust fyrir áhöfnina á meðfylgjandi sorphirðubíl að komast um Norðurárdalsveg í sunnanverðum í Norðurárdal í gær. Vegurinn hefur verið án viðhalds um langa hríð og undirlagið líklega aðallega mold með þunnu malarlagi yfir. Nú þegar vorleysingar ganga yfir er vegurinn ófær fyrir alla þyngri bíla og líklega ber hann ekki nokkra þungaumferð óháð árstímum. Talsvert bras var að ná bílnum upp úr vilpunni en til þess var notaður krókheysibíll frá sama fyrirtæki. Ljóst er að vegurinn verður lengi að jafna sig.

Íbúar á svæðinu, sem sendu Skessuhorni meðfylgjandi myndir, skora á frambjóðendur til sveitarstjórnar að taka upp harðari hagsmunagæslu gagnvart ríkisvaldinu til að auka megi viðhald tengi- og héraðsvega í Borgarbyggð.