
Dalverjans lönd nefnist sýning Eyþórs Inga
Ljósmyndarinn og organistinn Eyþór Ingi Jónsson opnar ljósmyndasýningu sína „Dalverjans lönd“ á Dalahóteli á Laugum í Sælingsdal á laugardaginn kl. 20. Eyþór hefur verið að mynda æskuslóðir sínar og sýnir hann ljósmyndir frá fyrsta ári sínu í verkefninu „Dalverjans lönd.“ Á sýningunni verður skyggnst um af Skeggöxl en um er að ræða fyrsta hluta í viðamiklu ljósmyndaverkefni sem Eyþór Ingi stendur fyrir. Verkefnið hlaut styrk úr DalaAuði árið 2025. Þessi fyrsti hluti verkefnisins snýr að því að mynda vesturhluta Dalasýslu en fjallið Skeggöxl er miðsvæðis þar og þaðan liggja ótal dalir til allra átta. „Fókusinn er á að mynda og miðla myndum frá Skarðsströnd, Fellsströnd og Hvammssveit,“ sagði Eyþór þegar rætt var við hann í Skessuhorni fyrir um ári síðan.