
Styrkur okkar er velferð allra – fjölbreytt dagskrá á morgun
Fyrsti maí sem hátíðisdagur rekur uppruna sinn allt aftur til heiðni en þar markaði hann endalok vetrar og upphaf sumars og í Skandinavíu var haldið upp á 1. maí sem sumardaginn fyrsta. Eftir að kristni komst á helgaði kirkjan þennan dag dýrlingnum Valborgu, sem var ensk prinsessa, trúboði og abbadís í Þýskalandi. Hins vegar varð 1. maí einnig kallaður verkalýðsdagurinn og er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Hann á uppruna sinn allt til ársins 1889 þegar fulltrúar alþjóðasamtaka kommúnista héldu ráðstefnu í París, í tilefni af því að hundrað ár voru liðin frá því að Parísarbúar tóku Bastilluna. Þar var ákveðið að gera fyrsta maí að baráttudegi hreyfingarinnar. Þessi tiltekni dagur var valinn meðal annars til að minnast blóðbaðsins á Haymarket í Chicago í Bandaríkjunum þremur árum áður. Á Íslandi var fyrsta kröfugangan á fyrsta maí gengin árið 1923 og hefur dagurinn verið löggiltur frídagur á Íslandi síðan 1966.
Verkalýðsfélög landsins hyggja á sína árlegu kröfugöngu verkalýðsins föstudaginn 1. maí undir slagorðinu „Styrkur okkar er velferð allra“ og standa stéttarfélögin Sameyki, Verkalýðsfélag Snæfellinga og Kjölur, Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, fyrir hátíðarhöldum á Snæfellsnesi. Dagskrá hefst í Stykkishólmi kl. 13:30 á Fosshóteli í Stykkishólmi. Í Grundarfirði hefst dagskrá 14:30 í Samkomuhúsi Grundarfjarðar og í Snæfellsbæ hefst dagskráin í Klifi kl. 15:30.
Baráttufundur Stéttarfélags Vesturlands og Kjalar hefst kl. 14:00 í Hjálmakletti í Borgarnesi, en baráttufundur Stéttarfélags Vesturlands, Kjalar og Sameykis í Dalabúð í Búðardal hefst kl. 13:00.
Verkalýðsfélag Akraness, VR, FIT, Kennarasamband Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands og Sameyki standa fyrir sameiginlegri dagskrá á Akranesi 1. maí kl. 14:00 og hefst með kröfugöngu frá Þjóðbraut 1, þar sem Verkalýðsfélag Akraness er til húsa.
Dagskrár samanstanda af kynnum, ræðumönnum, tónlistarflutningi og skemmtiatriðum, að ógleymdum kaffiveitingum. Fólki er bent á að klæða sig eftir veðri, en veðurspá fyrir dag verkalýðsins á Vesturlandi segir bjart veður en kalt.
Nánari upplýsingar um dagskrá stéttarfélaga á Vesturlandi má finna í Skessuhorni vikunnar.