
Síðastliðið föstudagskvöld boðaði Búnaðarfélag Lunddælinga til sameiginlegs framboðsfundar allra flokka sem bjóða fram í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Fundurinn var í félagsheimilinu Brautartungu og stýrði Gísli Einarsson umræðum. Gestir voru á fimmta tuginn og þar af nokkrir sem ekki eru á framboðslistum eða tengdir þeim. Frá flokkunum mættu Hermann B Valsson og Friðrik Aspelund…Lesa meira








