Gísli Einarsson stýrði pallborðsumræðum. Ljósm. mm

Málefni dreifbýlis rædd á framboðsfundi í Borgarbyggð

Síðastliðið föstudagskvöld boðaði Búnaðarfélag Lunddælinga til sameiginlegs framboðsfundar allra flokka sem bjóða fram í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Fundurinn var í félagsheimilinu Brautartungu og stýrði Gísli Einarsson umræðum. Gestir voru á fimmta tuginn og þar af nokkrir sem ekki eru á framboðslistum eða tengdir þeim. Frá flokkunum mættu Hermann B Valsson og Friðrik Aspelund frá Borgarbyggðarlista, Jón Eiríkur Einarsson og Davíð Sigurðsson frá Framsóknarflokki, Kristján Ágúst Magnússon og Ólafur Gíslason frá Sjálfstæðisflokki og Þórður Brynjarsson og Tinna Rut Þórarinsdóttir frá Miðflokki.