Yfirlitsmynd yfir staðsetningu væntanlegs framkvæmdasvæðis Njarðar Holding ehf á Grundartanga, sýnd með appelsínugulum lit.

Veigamiklar athugasemdir gerðar við matsáætlun magnesíumverksmiðju

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), Náttúrufræðistofnun, Vinnueftirlit, Vegagerðin, Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og Hafrannsóknastofnun eru meðal umsagnaraðila um matsáætlun vegna fyrirhugaðrar magnesíumverksmiðju Njarðar Holding ehf. á Grundartanga. Matsáætlunin er verkáætlun komandi umhverfismats vegna byggingar verksmiðjunnar og var hún kynnt almenningi fyrr í vetur. Hagsmunaaðilar, lögbundnir umsagnaraðilar og aðrir höfðu fjórar vikur til að leggja inn athugasemdir.  Umsagnir um matsáætlunina voru birtar á vef Skipulagsstofnunar 16. apríl síðastliðin og má lesa í heild sinni þar. HMS gerir m.a. fjölmargar og veigamiklar athugasemdir í greinargerð um matsáætlun verkefnisins. Verksmiðjan á að framleiða allt að 50.000 tonn af magnesíum á ári úr sjó en sem aukafurð 150.000 tonn af klór. Umsagnir frá öðrum stofnunum og sérfræðingum benda þó til þess að veruleg óvissa ríki um umhverfisáhrif og öryggi starfseminnar.