
Bjarni Sigurbjörnsson stóð í ströngu við að yfirfara reiðhjól Grundfirðinga fyrir sumarið. Ljósm. tfk
Mikið fjör á fjölskyldudegi D listans
Sumardagurinn fyrsti var haldinn hátíðlegur í síðustu viku og var veðrið með ljúfasta móti í Grundarfirði. Af þessu tilefni stóð D listinn - Sjálfstæðismenn og óháðir, fyrir sumarhátíð á planinu hjá Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Mikill fjöldi fólks mætti enda margt í boði á þessum skemmtilega viðburði. Þarna var hægt að láta yfirfara reiðhjólin sín, fá sér candyfloss, grillaðar pylsur, hoppukastalar voru á svæðinu og sitthvað fleira. Var ekki annað að sjá en að Grundfirðingar tækju á móti sumrinu með gleði í hjarta.