
Heiðarskóli og Heiðarborg. Ljósm. mm
Heiðarborg á að verða lifandi samfélagsmiðstöð
Framkvæmdir hafa verið í gangi við innréttingar á nýju íþróttahúsi við Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit. Framkvæmdir ganga vel að sögn sveitarfélagsins. Stefnt er að því að verkinu ljúki í ágúst á þessu ári. Nýr íþróttasalur veður tekinn í notkun ásamt nýjum þreksal og nýjum búningsklefum, ásamt móttöku og stoðrýmum. Þá er fyrirhugað að opna nýja pottaaðstöðu nokkrum vikum síðan.