Nýtt lag Björgvins Þ í flutningi Óskars Péturssonar

Félagarnir Óskar Pétursson og Björgvin Þ. Valdimarsson eru í sameiningu að gefa út nýtt lag sem heitir „Það varst þú.“ Lag og texti eru eftir Björgvins. Óskar og Björgvin hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina en á fyrsta diski Björgvins söng Óskar m.a. lögin Undir Dalanna sól, Kveðju heimanað og Mátt söngsins, auk lagsins Stúlkan mín sem Álftagerðisbræður sungu. Síðan gáfu þeir félagar út diskinn Allt sem ég er, árið 2009, en á þeim diski var Óskar aðal söngvari. Á diskinum sungu þrír gestasöngvarar m.a. Björgvin Halldórsson en hann og Óskar sungu saman titillag á diskinum.

„Texti nýja lagsins „Það varst þú“ fjallar fyrst og fremst um þakklæti til þess fólks sem maður gengur með í gegnum lífið og þær minningar sem tengjast því. Óskar syngur lagið af sinni alkunnu snilld enda með afbrigðum músíkalskur maður en bakraddir syngur söngkonan Helga Margrét Clarke en hún er einnig ættuð að norðan,“ segir Björgvin Þ.

Hægt er að hlusta á nýja lagið á Spotify og einnig á myndbandi á Youtube.