Setja þak á hækkun launa þjóðkjörinna fulltrúa

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fram frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um breytingu á lögum um laun þjóðkjörinna fulltrúa og embættismanna. Með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði varanlegt viðmið um uppfærslu launa þessa hóps og að laun hópsins hækki um 3,5% 1. júlí nk. í stað 9,7% hækkunar sem hefði annars orðið.