
Bjarki verður einungis sveitarstjóraefni Samhentrar sveitar
Ágætt máltæki segir að vika getur verið langur tími í pólitík. Það sannast reglulega. Rúmri viku eftir að Bjarki Þorsteinsson samþykkti að verða sveitarstjóraefni beggja framboða í Hvalfjarðarsveit eftir kosningarnar 16. maí tilkynnti hann í gær að nú hafi hann ákveðið að verða einungis sveitarstjóraefni A lista, Samhentrar sveitar. Í færslu á FB síðu sinni deilir Bjarki innleggi frá Haraldi Benediktssyni, oddvita A-lista Samhentrar sveitar í Hvalfjarðarsveit, þar sem Haraldur svarar þungum ávirðingum í hans garð, sem oddviti Í lista, Íbúahreyfingarinnar, lét frá sér í grein. Bjarki skrifar: „Þá vil ég upplýsa um að ég hef tilkynnt fulltrúum Íbúahreyfingarnar í Hvalfjarðarsveit að ég sé ekki tilbúinn að vera sveitarstjóraefni fyrir framboðið í komandi kosningum 16. maí eins og kynnt hefur verið.“
Ástæða þessarar niðurstöðu segir Bjarka vera að honum hugnast ekki sú orðræða og framganga sem hefur einkennt umræðu og greinarskrif fulltrúa Í-listans síðustu daga; „og beinast persónulega gegn oddvita A-listans, orðræða sem er ekki neinum málstað til gagns því sannfæring mín er sú að reynsla og þekking Haraldar Benediktssonar sé og verði samfélaginu í Hvalfjarðarsveit dýrmæt hljóti hann brautargengi sem oddviti sveitarstjórnar. Ég tel mikilvægt að sveitarstjórnarmál í Hvalfjarðarsveit líkt og annars staðar byggist á málefnalegri umræðu, gagnkvæmri virðingu, ábyrgð, metnaði og framtíðarsýn til heilla fyrir samfélagið, fyrir starfsandann innan stjórnsýslunnar sem og gangvart samstarfsaðilum nær og fjær.“