Fréttir

true

Akranesmeistaramótið í sundi

Akranesmeistaramótið fór fram í sundlauginni á Jaðarsbökkum á þriðjudaginn. 38 sundmenn tóku þátt, sem eru tíu fleiri en á síðasta ári. Allir keppendur stóðu sig vel og var mótið sömuleiðis vel heppnað og í blíðskapar veðri. Eftir mót var verðlaunaafhending og pizzaveisla í boði Galito. Akranesmeistar 2026 voru eftirtaldir : 11-13 ára stelpur: Rúna Björk…Lesa meira

true

Skagamenn gerðu orrahríð að marki KA manna

ÍA og KA áttust við í Akraneshöllinni miðvikudaginn 22. apríl síðast liðinn í leik í Bestu deild karla í fótbolta. Í fyrri hálfleik stjórnuðu Skagamenn algjörlega leiknum og gerðu oft harða hríð að marki KA manna en án árangurs. Strax á sjöttu og sjöundu mínútu sóttu Skagamenn hratt upp hægri kantinn, í fyrra skiptið small…Lesa meira

true

Byrjað er að endurræsa kerin í Norðuráli

Vel hefur gengið að endurræsa fyrstu kerin í kerlínu 2 hjá Norðuráli, en sú vinna hófst í byrjun vikunnar. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar. Framleiðsla hefur legið niðri í kerlínu 2 frá því í október á síðasta ári þegar bilun kom upp í rafspennum og…Lesa meira

true

Styrkja uppsetningu hraðhleðslustöðva

Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla. Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí nk. Átakinu er ætlað að styrkja net hleðslustöðva hringinn í kringum landið þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. Styrkirnir…Lesa meira

true

Gísli er með þeim fyrstu að pota útsæðinu niður

Senn kemur að því að kartöfluræktendur geti farið að athafna sig í görðunum. Sumsstaðar er þó frost enn í jörðu og jarðvegurinn of kaldur fyrir kartöflurnar. Það á þó ekki við hjá Gísla S Einarssyni fyrrverandi alþingismanni og bæjarstjóra á Akranesi. Hann er með kartöflugarð í góðu skjóli og á móti sól hvar hann býr…Lesa meira

true

Nótan var haldin á Patreksfirði

Um síðustu helgi var líf og fjör á Patreksfirði þegar yfir 60 börn og ungmenni ásamt foreldrum, kennurum og stjórnendum, sóttu bæinn heim til að halda svæðistónleika Nótunnar fyrir Vesturland og Vestfirði. Skólar af Vesturlandi áttu sína fulltrúa á hátíðinni. Víða mátti sjá nemendur á vappi um bæinn í góða veðrinu með hljóðfærin á bakinu…Lesa meira

true

Mikilvægt að þekkja tilraunir til svika

Íslandsbanki stóð fyrir opnum fræðslufundi fyrir eldri borgara í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness, fimmtudaginn 16. apríl sl. Til umræðu voru einföld og skilvirk öryggisráð sem gott er að hafa í huga til að verjast netsvikum. Elva Valdís Jóhönnudóttir, reyndur sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka, flutti fróðlegt og gott erindi fyrir hönd bankans og hlaut það góðar…Lesa meira

true

Fyrirtæki sjá fram á hægari vöxt en áður

Ný fyrirtækjakönnun landshlutanna er komin út. Könnunin var framkvæmd á tímabilinu apríl til október 2025 og tóku 2.165 fyrirtæki af öllu landinu þátt. Niðurstöður könnunarinnar sýna að íslensk fyrirtæki horfa fram á hægari vöxt en áður, með aukinni varfærni í ráðningum og fjárfestingum. Á sama tíma sjá fyrirtæki áfram tækifæri í auknu samstarfi, nýjum markaðssvæðum…Lesa meira

true

Viðamiklum framkvæmdum lokið í Brekkubæjarskóla – myndasyrpa

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur í skólanum eru um 470 talsins en starfsmenn skólans eru um 100. Skólastjóri Brekkubæjarskóla er Elsa Lára Arnardóttir, en hún tók við sem skólastjóri 1. ágúst 2025. Áður hafði hún gegnt stöðu aðstoðarskólastjóra frá árinu 2019, eða í sex ár. Miklar endurbætur og framkvæmdir hafa staðið…Lesa meira

true

Vorhugur kominn í strandveiðisjómenn

Það er aldrei lognmolla við smábátahöfnina á Akranesi þó að útgerðin sé ekki svipur hjá sjón frá því sem áður var. Fyrir um tuttugu árum var Akranes stórútgerðarbær og rekin hér stór sjávarútvegsfyrirtæki. Nú er öldin önnur. Trillusjómennirnir Þórður Magnússon og Sigurjón Hafsjór Birgisson voru að dytta að bátum sínum við höfnina á Akranesi í…Lesa meira