
Víkingasveit Lúðrasveitar Stykkishólms spilaði undir stjórn Martin Markvoll. Ljósm. ga
Nótan var haldin á Patreksfirði
Um síðustu helgi var líf og fjör á Patreksfirði þegar yfir 60 börn og ungmenni ásamt foreldrum, kennurum og stjórnendum, sóttu bæinn heim til að halda svæðistónleika Nótunnar fyrir Vesturland og Vestfirði. Skólar af Vesturlandi áttu sína fulltrúa á hátíðinni. Víða mátti sjá nemendur á vappi um bæinn í góða veðrinu með hljóðfærin á bakinu á leið sinni til og frá æfingum. Skipuleggjendur tónleikanna ákváðu að til að sameina krafta allra var flutt sameiginlega eitt lag sem upphafsatriði Nótunnar. Fyrir valinu varð útsetning á laginu Rock Around the Clock sem Ísfirðingurinn Madis Maekalle útfærði en hann hélt jafnframt um tónsprotann.