Elva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka. Ljósm. óhk

Mikilvægt að þekkja tilraunir til svika

Íslandsbanki stóð fyrir opnum fræðslufundi fyrir eldri borgara í Tónbergi, sal Tónlistarskóla Akraness, fimmtudaginn 16. apríl sl. Til umræðu voru einföld og skilvirk öryggisráð sem gott er að hafa í huga til að verjast netsvikum. Elva Valdís Jóhönnudóttir, reyndur sérfræðingur á svikavakt Íslandsbanka, flutti fróðlegt og gott erindi fyrir hönd bankans og hlaut það góðar viðtökur viðstaddra. Blaðamaður Skessuhorns mætti á staðinn og kynnti sér málið. Í heimi sem er í hraðri þróun og tekur sífelldum breytingum er mikilvægt að fylgjast með til að tryggja að við séum með nýjustu upplýsingar á öllum tímum. Hinn stafræni heimur býður upp á fjölda tækifæra, en honum fylgja einnig nýjar áskoranir varðandi netöryggi. Þess vegna er mikilvægt að kunna að þekkja tilraunir til svika og vita hvernig hægt er að verjast þeim á einfaldan og öruggan hátt. Á þessu sviði sem öðrum er alltaf eitthvað um nýjungar sem svikahrappar beita.