
Byrjað er að endurræsa kerin í Norðuráli
Vel hefur gengið að endurræsa fyrstu kerin í kerlínu 2 hjá Norðuráli, en sú vinna hófst í byrjun vikunnar. Stefnt er á að álverið verði komið í fulla framleiðslu á ný í lok júlímánaðar. Framleiðsla hefur legið niðri í kerlínu 2 frá því í október á síðasta ári þegar bilun kom upp í rafspennum og varð þess valdandi að álframleiðsla á Grundartanga dróst saman um tvo þriðju hluta.