
Styrkja uppsetningu hraðhleðslustöðva
Loftslags- og orkusjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar hraðhleðslustöðva fyrir rafbíla. Opnað verður fyrir umsóknir 1. maí nk. Átakinu er ætlað að styrkja net hleðslustöðva hringinn í kringum landið þannig að hvergi finnist þéttbýlisstaður á Íslandi án hraðhleðslustöðvar og hvergi á þjóðvegakerfi landsins verði lengra en 100 km á milli hraðhleðslustöðva. Styrkirnir eru liður í sértækum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna stríðsátaka við Persaflóa sem kynntar voru 10. apríl síðastliðinn. Þær miða annars vegar að því að verja heimili fyrir áhrifum hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu og hins vegar að því að gera sem flestum kleift að slíta sig frá dælunni, skipta yfir á rafmagnsbíl og nota hreina íslenska orku í stað innflutts jarðefnaeldsneytis.