Jóhannes Símonsen, formaður smábátafélagsins Sæljóns á Akranesi. Ljósm. ÓHK

Vorhugur kominn í strandveiðisjómenn

Það er aldrei lognmolla við smábátahöfnina á Akranesi þó að útgerðin sé ekki svipur hjá sjón frá því sem áður var. Fyrir um tuttugu árum var Akranes stórútgerðarbær og rekin hér stór sjávarútvegsfyrirtæki. Nú er öldin önnur. Trillusjómennirnir Þórður Magnússon og Sigurjón Hafsjór Birgisson voru að dytta að bátum sínum við höfnina á Akranesi í vorblíðunni á fimmtudaginn þegar blaðamaður Skessuhorns leit þar við. Það var hugur í mönnum þar sem þeir voru að pússa og botnmála bátana og gera klárt fyrir vertíðina sem fer á fullt í byrjun næsta mánaðar. En þeir voru hreint ekki ánægðir með allt sjómennirnir. „Það er bara allur kvóti tekinn hér úr byggðarlaginu, ef einhver aukakvóti fæst þá er hann farinn strax í burtu,“ sagði Þórður.