Brekkubæjarskóli og íþróttahúsin tvö. Texti og myndir: ÓHK

Viðamiklum framkvæmdum lokið í Brekkubæjarskóla – myndasyrpa

Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur í skólanum eru um 470 talsins en starfsmenn skólans eru um 100. Skólastjóri Brekkubæjarskóla er Elsa Lára Arnardóttir, en hún tók við sem skólastjóri 1. ágúst 2025. Áður hafði hún gegnt stöðu aðstoðarskólastjóra frá árinu 2019, eða í sex ár. Miklar endurbætur og framkvæmdir hafa staðið yfir í skólanum liðin ár en nú sér loks fyrir endann á því. Opið hús verður í dag á sumardaginn fyrsta, þar sem íbúar geta kynnt sér húsakostinn eftir breytingar. Af þessu tilefni settist blaðamaður Skessuhorns niður með Elsu Láru og innti hana eftir því hvernig til hefði tekist.