
Þeir eru bjartsýnir. Myndin tengist fréttinni ekki með neinum hætti. Ljósm. úr safni/vaks
Fyrirtæki sjá fram á hægari vöxt en áður
Ný fyrirtækjakönnun landshlutanna er komin út. Könnunin var framkvæmd á tímabilinu apríl til október 2025 og tóku 2.165 fyrirtæki af öllu landinu þátt. Niðurstöður könnunarinnar sýna að íslensk fyrirtæki horfa fram á hægari vöxt en áður, með aukinni varfærni í ráðningum og fjárfestingum. Á sama tíma sjá fyrirtæki áfram tækifæri í auknu samstarfi, nýjum markaðssvæðum og nýtingu nýrrar tækni.