Fréttir

true

Endanlega gengið frá sölu Landsbankahúss

Síðastliðinn föstudag var endanlega gengið frá sölu Akraneskaupstaðar á Landsbankahúsinu við Akratorg. Var undirritun samnings þar að lútandi síðasta embættisverk Haraldar Benediktssonar bæjarstjóra sem nokkrum mínútum síðar lét af starfi bæjarstjóra. Akraneskaupstaður seldi húsið um miðjan janúar til Hrauns fasteignafélags ehf. Í millitíðinni hefur verið gengið frá samningum varðandi höfundarrétt á húsinu. Það voru þeir…Lesa meira

true

„Áhrifaríkt og ógleymanlegt“ – nemendur FVA í sögu heimsóttu Auschwitz

Í Fjölbrautaskóla Vesturlands eru ýmis spennandi tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttum alþjóðlegum verkefnum. Á hverju ári er samstarf kennara og nemenda í gegnum Erasmus+ (menntaáætlun Evrópusambandsins) og í vor fer starfsmannahópurinn til Ítalíu til að kynna sér skólahald Rómverja. Einnig er hefð er fyrir því í FVA að heimsækja bæði Pólland og Þýskaland…Lesa meira

true

Met marsmánuður að baki í útflutningi sjávarafurða

Útlit er fyrir að marsmánuður hafi verið metmánuður í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Alls voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 43,8 milljarða króna, sem er það hæsta sem mælst hefur í einum mánuði eins langt aftur og mánaðargögn ná, eða til ársins 2002. Gildir þá einu hvort miðað er við krónur eða erlenda mynt, jafnvel að teknu tilliti…Lesa meira

true

Norræni fjárfestingarbankinn leggur OR lið

Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað tíu ára lánasamning að fjárhæð ríflega 4,6 milljarða króna til fjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027. Verkefnið felur í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis. Heildarkostnaður verkefnisins nemur ríflega 6,3 milljörðum króna. Fram kemur…Lesa meira

true

Bæjarsjóður á Akranesi gerður upp með 409 milljóna króna afgangi

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði 16. apríl sl. og samþykkt að vísa honum til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 28. apríl. Fundargerð bæjarráðs hefur ekki verið birt á heimasíðu kaupstaðarins, þannig að fréttin byggir á tilkynningu sem birt var á upplýsingasíðu kaupstaðarins. Fram kemur að rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík kominn í úrslit

Fyrsti heimaleikur Víkings Ó var í gær á móti Dalvík/Reyni í undanúrslitum B deildar í Lengjubikarnum. Skemmst er frá því að segja að heimamenn unnu leikinn 2-1 og komust í úrslitaleikinn ásamt Álftanesi. Alysson Da Silva skoraði mark á 24. mínútu en Dalvík/Reynir jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var eftir. Aðeins þremur mínútum síðar gerði Ellert…Lesa meira

true

Enn er vindmælimastrið ljóslaust á Grjóthálsi

Nú er réttur mánuður liðinn frá því að hindrunarljósið á toppi vindmælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði slokknaði í eldingaveðri. Bent var á þetta í frétt Skessuhorns tveimur vikum síðar, en ennþá hefur ekki verið brugðist við. Frá því 19. mars í vor hefur því ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimastursins. Mastrið var…Lesa meira

true

Bjarki er sveitarstjóraefni beggja framboða í Hvalfjarðarsveit

„Íbúahreyfingin í Hvalfjarðarsveit hefur ásamt fleirum heyrt af uppganginum í Dalabyggð. Þar er sveitarstjóri sem hefur gott orð á sér sem yfirmaður og samstarfsmaður. Bjarki Þorsteinsson hefur opnað á tengingu á milli íbúa og sveitarstjórnar. Samkvæmt íbúakönnun landshlutanna skora Dalirnir hátt í þáttum eins og samráði og virku lýðræði. Okkur hugnast það vel og við…Lesa meira

true

Tveir Vestlendingar náðu langt í stærðfræðikeppni

Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fór fram í Menntaskólanum í Hamrahlíð síðastliðinn laugardag. Keppnin, sem var fyrst haldin á Íslandi fyrir tíu árum, er fyrir grunnskólanemendur í 8. og 9. bekk af landinu öllu. Fjöldi þátttakenda í ár var 4.694 og því er keppnin sú langstærsta sinnar tegundar hér á landi. Í vor hafa undankeppnir farið fram…Lesa meira

true

Bjarki er sveitarstjóraefni A listans í Hvalfjarðarsveit

Framboðslistinn Samhent sveit, A listi í Hvalfjarðarsveit, hefur leitað til Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra Dalabyggðar um að verða sveitarstjóefni listans að loknum kosningum. „Það er okkur mikil ánægja að geta sagt frá því að Bjarki Þorsteinsson hefur samþykkt að verða sveitarstjóraefni okkar í kosningum til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.  Bjarki hefur unnið gott starf í Dalabyggð síðastliðin fjögur…Lesa meira