Bjarki er sveitarstjóraefni A listans í Hvalfjarðarsveit

Framboðslistinn Samhent sveit, A listi í Hvalfjarðarsveit, hefur leitað til Bjarka Þorsteinssonar sveitarstjóra Dalabyggðar um að verða sveitarstjóefni listans að loknum kosningum. „Það er okkur mikil ánægja að geta sagt frá því að Bjarki Þorsteinsson hefur samþykkt að verða sveitarstjóraefni okkar í kosningum til sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.  Bjarki hefur unnið gott starf í Dalabyggð síðastliðin fjögur ár, lagt áherslur með sinni sveitarstjórn á að efla sýnileika sveitarfélagsins, efla samheldni íbúa og ekki síst verið farsæll baráttumaður hagsmuna íbúa. Það eru allt áherslur sem Samhent sveit, A listi, vill vinna að,“ segir Haraldur Benediktsson, oddviti listans. Samkomulagið var handsalað á Laxárbakka eftir hádegi í dag.

Bjarki Þorsteinsson kveðst í samtali við Skessuhorn vera þakklátur því trausti sem Samhent sveit sýni honum með að gera hann að sveitarstjóraefni sínu. „Það hefur vissulega verið leitað til mín úr ýmsum áttum og mér boðin svipuð staða í kjölfar þess að ég lét vita um að ég ætlaði að rifa seglin í Dalabyggð. Eftir vandlega íhugun var það niðurstaða mín að í ljósi þess að hér í Hvalfjarðarsveit er margt í gangi og spennandi tækifæri að þiggja boðið. Ég hlakka til að takast á við þau verkefni, fái listinn meirihluta,“ sagði Bjarki.

Á morgun, laugardag klukkan 14 hefur A listi boðað til fundar á Laxárbakka og býður íbúum að koma til samtals um hvernig þeir vilja leggja áherslur næsta kjörtímabils. „Við leggjum sérstaka áherslu á að hlusta, frekar en að boða. Það er ekki gert án þátttöku íbúa að móta stefnu næstu ára. Þannig búum við til samhenta sveit.  Ég vil einnig taka það fram að ég hef rætt við oddvita Íbúahreyfingarinnar um þessi áform okkar og ég vonast eftir góðri samstöðu,“ segir Haraldur.