
Frá undirritun lánasamningsins. Ljósm. Helga Björg Pétursdóttir
Norræni fjárfestingarbankinn leggur OR lið
Norræni fjárfestingarbankinn (NIB) og Orkuveita Reykjavíkur hafa undirritað tíu ára lánasamning að fjárhæð ríflega 4,6 milljarða króna til fjármögnunar framkvæmda hjá ON Power við Hellisheiðarvirkjun á árunum 2025–2027. Verkefnið felur í sér aukna varmaframleiðslu til húshitunar, borun nýrrar vinnsluholu sem og byggingu nýs viðhalds- og geymsluhúsnæðis. Heildarkostnaður verkefnisins nemur ríflega 6,3 milljörðum króna.