Tveir Vestlendingar náðu langt í stærðfræðikeppni

Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fór fram í Menntaskólanum í Hamrahlíð síðastliðinn laugardag. Keppnin, sem var fyrst haldin á Íslandi fyrir tíu árum, er fyrir grunnskólanemendur í 8. og 9. bekk af landinu öllu. Fjöldi þátttakenda í ár var 4.694 og því er keppnin sú langstærsta sinnar tegundar hér á landi. Í vor hafa undankeppnir farið fram í 62 skólum víða um land og 100 hlutskörpustu nemendunum var svo boðið í úrslitakeppnina í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Að henni lokinni var boðið upp á kræsingar og skemmtiatriði áður en peningaverðlaun voru veitt efstu þremur keppendum í hvorum bekk fyrir sig.