
Enn er vindmælimastrið ljóslaust á Grjóthálsi
Nú er réttur mánuður liðinn frá því að hindrunarljósið á toppi vindmælimasturs á Grjóthálsi í Borgarfirði slokknaði í eldingaveðri. Bent var á þetta í frétt Skessuhorns tveimur vikum síðar, en ennþá hefur ekki verið brugðist við. Frá því 19. mars í vor hefur því ekkert hindrunarljós logað á toppi 98 metra hás mælimastursins. Mastrið var sett upp í byrjun ágúst á síðasta ári og er ætlað að mæla vind vegna hugmynda um vindmylluver í landi Hafþórsstaða í Norðurárdal og Sigmundarstaða í Þverárhlíð. Hrjónur ehf. er félag landeigenda sem skráð er fyrir vindmælingunum.
Samkvæmt upplýsingum Skessuhorns tóku íbúar á svæðinu eftir því að hindrunarljósið slokknaði eftir eldingaveður sem gekk yfir fimmtudaginn 19. mars. Ein af forsendum þess að framkvæmdaleyfi var gefið út til uppsetningar mælimastursins var sú að á toppi þess væri blikkandi viðvörunarljós. Það er gert til að auðvelda flugmönnum í sjónflugi að sjá mastrið, en Grjótháls er meðal annars þekkt leið þyrla í sjúkraflugi. Þá er samkvæmt heimildum Skessuhorns ekki búið að setja mælimastrið inn í flugrita og vantar auk þess að merkja inn á sjónflugskort. Þetta tvennt eykur enn mikilvægi þess að hindrunarljós sé til staðar á toppi mastursins. Auk fréttar Skessuhorns hafa fjölmargir sent ábendingar til Samgöngustofu um ljósleysi mælimastursins. Þeirra á meðal eru atvinnuflugmenn sem telja verulega hættu stafa af því að mastrið sé ekki sýnilegt flugmönnum í sjónflugi, þeirra á meðal eru þyrluflugmenn hjá Landhelgisgæslunni.