Hreinn Jónsson skipstjóri a Eskey að raða vel í fiskikörin á Arnarstapa fyrr á þessu ári. Ljósm. úr safni/af

Met marsmánuður að baki í útflutningi sjávarafurða

Útlit er fyrir að marsmánuður hafi verið metmánuður í útflutningsverðmæti sjávarafurða. Alls voru fluttar út sjávarafurðir fyrir 43,8 milljarða króna, sem er það hæsta sem mælst hefur í einum mánuði eins langt aftur og mánaðargögn ná, eða til ársins 2002. Gildir þá einu hvort miðað er við krónur eða erlenda mynt, jafnvel að teknu tilliti til verðbólgu erlendis. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í mars en þar eru verðmætin einungis birt niður á grófa vinnsluflokka, ekki fisktegundir.