Bæjarskrifstofan við Dalbraut 4 á Akranesi.

Bæjarsjóður á Akranesi gerður upp með 409 milljóna króna afgangi

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2025 var lagður fram í bæjarráði 16. apríl sl. og samþykkt að vísa honum til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 28. apríl. Fundargerð bæjarráðs hefur ekki verið birt á heimasíðu kaupstaðarins, þannig að fréttin byggir á tilkynningu sem birt var á upplýsingasíðu kaupstaðarins. Fram kemur að rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 408,5 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir að rekstrarafgangur yrði um 13,7 milljónir króna. Rekstrarniðurstaða A- og B hluta samstæðunnar var jákvæð um 293,5 milljónum króna, en í áætlunum var gert ráð fyrir 101 milljóna króna tapi.