
Lið Víkings. Ljósm. af
Víkingur Ólafsvík kominn í úrslit
Fyrsti heimaleikur Víkings Ó var í gær á móti Dalvík/Reyni í undanúrslitum B deildar í Lengjubikarnum. Skemmst er frá því að segja að heimamenn unnu leikinn 2-1 og komust í úrslitaleikinn ásamt Álftanesi. Alysson Da Silva skoraði mark á 24. mínútu en Dalvík/Reynir jafnaði metin þegar stundarfjórðungur var eftir. Aðeins þremur mínútum síðar gerði Ellert Gauti Heiðarsson markið sem kom Víkingum í úrslitaleikinn. Andstæðingur þeirra þar verða Haukar eða Fjölnir sem mætast í hinum undanúrslitaleiknum í dag, sunnudag.