
Bjarki er sveitarstjóraefni beggja framboða í Hvalfjarðarsveit
„Íbúahreyfingin í Hvalfjarðarsveit hefur ásamt fleirum heyrt af uppganginum í Dalabyggð. Þar er sveitarstjóri sem hefur gott orð á sér sem yfirmaður og samstarfsmaður. Bjarki Þorsteinsson hefur opnað á tengingu á milli íbúa og sveitarstjórnar. Samkvæmt íbúakönnun landshlutanna skora Dalirnir hátt í þáttum eins og samráði og virku lýðræði. Okkur hugnast það vel og við höfum verið í samtali við Bjarka. Síðastliðinn föstudag hittust fulltrúar Íbúahreyfingarinnar og ákváðum við að Bjarki yrði sveitarstjóraefni okkar,“ segir í tilkynningu frá Íbúahreyfingunni í Hvalfjarðarsveit sem býður fram undir listabókstafnum Í.
Síðastliðinn föstudag var það tilkynnt við athöfn á Laxárbakka að Bjarki yrði sveitarstjóraefni A lista, Samhentrar sveitar. Nú liggur þar með fyrir að Bjarki verður sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar eftir kosningar 2026 því báðir listar í framboði hafa valið hann til forystu.